Algengur misskilningur um skyndihjálp

Hér eru nokkra rangar fullyrðingar um skyndihjálp. Prófið að spyrja skólafélaga þessara spurninga. Veljið svo eina fullyrðingu og búið til stuttan leikþátt þar sem sannleikurinn kemur í ljós.
Best er að stöðva blóðnasir með því að halla höfðinu aftur?
- NEI, ÞETTA ER RANGT! Ef þú hallar höfðinu aftur þá lekur allt blóðið beint ofan í öndunarveginn. Betra er að klemma saman mjúka hluta nefsins og halla sér fram.
Það er alger óþarfi að læra skyndihjálp – best er að hringja bara í Neyðarlínuna 1-1-2 og þá berst hjálp innan 5 mínútna?
- NEI, ÞETTA ER RANGT! Allir geta lært lífsbjargandi atriði skyndihjálpar. Það tekur sjúkrabíl a.m.k. 5-7 mínútur að komast á vettvang, það sem gert er á fyrstu mínútunum eftir slys getur skipt sköpum.
Ef einhver tekur inn eitur er best láta viðkomandi strax kasta upp?
- NEI, ÞETTA ER RANGT! Ef fingrinum er stungið ofan í kok og viðkomandi andar geta uppköstin stíflað öndunarveginn. Ef um ertandi eiturefni er að ræða er óæskilegt að láta eitra tvisvar sinnum um öndunarveginn. Betra er að reyna að finna út hvað viðkomandi tók inn og leita til sérfræðinga (Neyðarlínan, 112). Nauðsynlegt er að geyma umbúðir utan af eitrinu.